Lake hótel
Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstadir er rómað, fjölskyldurekið hótel sem hvílir á gömlum merg íslenskrar bændamenningar.
EIGILSSTAÐIR
EGILSSTÖÐUM 1-2
Um hótelið
Þetta gistihús er til húsa á endurbættum bóndabæ við Lagarfljót á Egilsstöðum. Boðið er upp á björt herbergi með flatskjásjónvarpi, ókeypis Wi-Fi-Interneti og sérbaðherbergi með sturtu.
Öll herbergin á Lake Hotel Egilsstaðir eru með sætisaðstöðu, te/kaffiaðbúnað og viðargólf. Sum herbergin eru með útsýni yfir vatnið. Gestir eru með aðgang að sameiginlegri setustofu með tölvu og dagblöðum.
Hótelið býður upp á morgunverðarhlaðborð. Alþjóðlegir réttir eru í boði á veitingastað Lake Hotel Egilsstaðir.
Egilsstaðir eru nefndir eftir þessum gamla bóndabæ. Egilsstaðaflugvöllur er í 1,7 km fjarlægð.
Pör eru sérlega hrifin af staðsetningunni – þau gáfu henni einkunnina 9,1 fyrir tveggja manna ferðir.
Gjafabréfið gildir eingöngu fyrir gistingu á Standard herbergi.
Hvernig bóka ég gistingu?
Til að bóka gistingu hafið samband í síma +354 471 1114 eða sendið tölvupóst á netfangið hotel@gistihusid.is
Helstu skilmálar
Hægt er að nýta gjafabréfið einu sinni á tímabilinu 1. september til 30. apríl næstu 4 árin frá kaupdegi.
Kaupandi getur skilað vörunni/hætt við kaupin innan 14 daga frá kaupum gjafabréfsins. Það getur tekið allt að 14 daga að fá endurgreitt. Sé vörunni skilað eftir þennan tíma er varan ekki endurgreidd heldur eignast handhafi inneignarnótu hjá Ferðaeyjunni sem hann getur nýtt til kaups á öðrum gjafabréfum.
Skilaréttur gildir að því tilskildu að varan sé ónotuð í upprunalegu ástandi með verðmerkingunum á. Ferðaeyjan ehf áskilur sér rétt til þess að neita að taka við vöru tilbaka séu ofangreind skilyrði ekki uppfyllt.
Ef ekki er til ný vara í stað gallaðrar/rangrar vöru og ekki er hægt að bæta vöruna fæst varan endurgreidd.
Eigandi gjafabréfsins er handhafi þess.
Ekki er hægt að nýta gjafabréfið ef það týnist eða glatast.
Ef þú færð senda gallaða vöru eða ranga pöntun, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst á pickiceland@pickiceland.com með upplýsingum um pöntunarnúmer og nafn vörunnar sem um ræðir.
Ef varan er gölluð sendu okkur þá nákvæma lýsingu og mynd af gallanum. Við munum í framhaldinu kanna málið og hafa svo samband við þig í tölvupósti um hver næstu skref verða.
Sjá nánar hér: https://ferdaeyjan.is/skilmalar/
Upplýsingar
Ferðaeyjan
Ferðaeyjan ehf
kt. 420620-2680
Ármúli 13
108 Reykjavík
Netfang: pickiceland@pickiceland.com
Viltu skrá eign þína?
Fylgdu okkur
Facebook
Instagram
Linkedin